Þar leyndist alls konar dót/drasl í kjallarnum og fóru heilu kassarnir beint á ruslahaugana.
Upp úr einum kassanum komu þó þessir, að mér finnst, flottu kertastjakar.
Ég týmdi ekki að henda þeim en fannst þeir ekki alveg nógu góður eins og þeir voru. Þannig að ég skrapp í málningarbúðina og keypti hvítt málningarsprey.
Veðrið var frábært á Ísafirði á meðan ég var þar og því var bara kjörið að spreyja stjakana úti í garði.
Miðað við að þetta var í fyrsta skipti sem ég nota svona sprey þá er ég bara nokkuð sátt við útkomuna.
Stjakarnir eins og þeir komu upp úr kjallaranum |
Stjakarnir spreyjaðir út í garði |
Bara nokkuð sátt með þetta :) |